Hámark og harðfiskur
8.9.2011 | 14:42
Sit kampakát fyrir framan (eða aftan - ef við gerum ráð fyrir því að þú, lesandi góður ert hinum megin við skjáinn horfandi á mig) skólabækurnar!
... ástæðan??
Jú, einfaldlega sú að mér líður svo vel. Mér líður vel í húðinni og skrokknum, allt mér að þakka! Allt því að þakka að ég hef náð að druslast í ræktina heilmikið undanfarið. Ég finn vöðvana alla vera að taka við sér og mikið lifandi skelfingar ósköp er það nú góð tilfinning. Ég borða hollt og passlega. Ég er einfaldlega bara með´etta!!. (Án þess að hljóma eins og argasti hrokagikkur)
Það er bara þannig að ég þekki báðar hliðar teningsins. Ég þekki það að finnast VONLAUST að halda í þennan lífstíl. Sjá bara kg hrannast upp og vera þarafleiðandi hrikalega ósáttur með sjálfan sig, allan daginn, alla daga. Og það er sko ekki líf sem ég vil lifa! Að vera ósátt við þá manneskju sem ég sit uppi með allt mitt líf. Það er auðvitað bara glatað!
Það er erfitt að koma sér af stað. En það MARGborgar sig! Og það skemmtilega er að það er bara frekar fljótt að borga sig. Og svo er líka mikilvægt að muna að það er aldrei of seint.
Ekki að ég sé að segja að ég sé einhver fitness-master. Nei nei nei, því fer nú fjarri! En mér líður vel þegar ég er búin að gera æfingarnar mínar. Mér líður vel þegar svitinn brýst út. Mér líður vel þegar ég næ varla andanum eftir spretti. Og mér líður ólýsanlega vel þegar endorfínið flæðir eftir æfingu. Mér finnst eins og ég geti sigrað heiminn!
.... já, kallið mig bara dramadrottningu, það lýsir mér ágætlega 
En... aðalatriðið er að ég og vinur minn, hann Stjáni blái, við erum bara alls ekkert það ólík. Raðandi í okkur spínati og með þessa fínu múskla!

.. Ég er samt ekki svona reið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mont :)
9.6.2011 | 09:17
Tíminn líður og flýgur..
Matthías litla ofurkrútt er kominn í heimsókn til Berglindar sinnar og Baldvins síns og ætlar að passa okkur næstu 10 dagana. Margt skemmtilegt planað og hann kom með ýmsar óskir. Eins og t.d. að baka pizzu saman, gefa öndunum brauð, "leika niðri", fá special K að borða.
Já, ekki beint high maintenance hann litli gaurinn minn.
Hann var rosa duglegur að fara að sofa í gærkvöldi og sömuleiðis að vakna í morgun. Litli kúturinn minn.
Hinn gaurinn á heimilinu, þessi eldri. Hann var afmælisbarn í gær. Orðinn 23 ára. Mér finnst það stór tala!
Svo er eitt enn. Ég er svo hrikalega montin af mér. Fékk símtal í gær og mér tilkynnt að ég myndi hljóta hvatningarverðlaun bókaútgáfunnar Codex því ég var með hæstu meðaleinkunnina á 1. ári, ásamt einum öðrum. Váváváv.
Mikið montin! Mikið stolt! 
En jæja..
Vinnan kallar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ný byrjun..
26.5.2011 | 08:57
Fór í ræktina í gær.
Fann alveg að ég er á einhverskonar botni (það kannski hjálpaði ekki beint að vera enn með hálsbólgu og vesen).
En þá þýðir nú lítið annað en að spyrna sér upp frá botninum. Leiðin getur ekki legið annað en að uppávið.
Held samt að ég hefði kannski átt að hvíla mig í einn dag í viðbót, langar alveg innilega ekki að þessi veikindi dragist á langinn vegna fljótfærni 
En ég semsagt fór á skíðatækið í korter og fór svo í tabata. Bara gaman auðvitað. Þó ég hafi verið alveg við það að gubba - enda bara borðað nokkra sopa af þykkmjólk áður en ég fór (mjólkurvara = big no no) og þar áður ekkert síðan í hádeginu.. jæks.. 
En allavegana. Fórum svo í mat til tengdó. Fengum þar dýrindis lambafillet með bernei mmmmmmmmm. Nammigott! Eyddum svo því sem eftir var af kvöldinu bara kúrandi yfir sjónvarpinu. SVO notalegt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nei hvur fjárinn...
25.5.2011 | 15:15
Mikið líður tíminn ósköp hratt.
Prófin komin og farin, einkunnir komnar og vinnan byrjuð.
Þegar maður lærir eins og berserkur alla önnina er maður auðvitað aldrei ánægður nema með 10 og þar sem það gerist nú sárasjaldan nema þá kannski helst í krossaprófum er maður sjaldnast 100% ánægður.
Þessi ofur metnaður getur nú farið illa með mann skal ég segja ykkur.
En jújú, prófin gengu og einkunnirnar voru nú svosem ágætar svo ég ætla ekki að kvarta (meira).
Hef verið að skoða hin ýmsu blogg undanfarið - hjá fólki sem ég þekki hvorki haus né sporð á. Hrikalega skemmtilegir pennar. Hefði ekkert á móti því að vera svona lipur í orðavali.
En já, vinnan!
Ég er sumsé símadama hjá Tollstjóra í sumar. Mjög fínt jobb. Eftir að hafa reynt vel á heilann í vetur er ágætt að taka sér smá sumarfrí og vinna svona þægilega vinnu. Þó svo að ég finni það nú alveg eftir 1 og hálfa viku að það væri nú ljúft ef framtíðarstarfið fæli í sér svolítið krefjandi verkefni. Bara svona svo að þessar heilasellur sem eftir eru haldist á lífi. En þetta er hið fullkomna starf fyrir skólafólk í krefjandi námi.
Samstarfsfólkið ekkert nema yndislegheit svo að lífið er bara mjög ljúft.
Svo er það mál málanna þessa dagana.
Er loksins uppiskroppa með afsakanir í sambandi við heilbrigðari lífstíl.
Þó svo að ég borði allajafna mjög hollt þá er alltaf hægt að gera betur.
Þegar lærdómurinn er ekki að íþyngja manni og maður er laus og liðugur alla daga eftir kl 4 þá er nú ekki erfitt að finna sér tíma fyrir sjálfan sig og njóta þess að hreyfa kroppinn.
Eftir að hafa sokkið í smá hálsbólguvesen er ég öll að braggast og stefni því á hrikalegan dugnað næstu vikurnar/mánuðina.
Ég er búin að vera að skoða ca 3 ára gamlar myndir af mér og boy oh boy var ég í glimrandi góðu formi. En var ég ánægð með mig á þeim tíma? Nei að sjálfsögðu ekki - maður er ALDREI ánægður með sig. Svo að andlega hliðin, það þarf svo sannarlega að vinna í henni. Þetta snýst ekki allt um töluna á vigtinni - síður en svo. Ég vil bara fyrri styrk og verða ánægð með mig.
En þetta er semsagt það sem ég ætla að taka mér fyrir hendur í sumar.
Ein allsherjar yfirhalning á sjálfri mér!
En það á sko ekkert að verða leiðilegt - þetta verður mega fjör!
Hlakka til að öðlast fyrri styrk og þol.
Skal leyfa ykkur að fylgjast með kæru vinir
Þið megið svo endilega kvitta!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.maí
1.5.2011 | 14:22
Jæja ...
þegar maður er alveg að gefa upp öndina vegna prófa er best að gera eitthvað allt annað - eins og að blogga.
1 próf búið, 2 eftir.. er ekki alveg farin að sjá fyrir endann á þessu þó svo að ég viti af honum einhverntíma í næstu viku.. Það er svo mikið að gera að ég hef ekki einu sinni tíma til að hugsa um vinnuna í sumar. Ætla að eyða sem minnstum tíma í að hugsa um hana samt og einbeita mér að því að njóta lífsins frá 4-8
(í sumar þ.e.a.s .. lífsins verður víst ekki notið fyrr .. nema rétt á milli 11 og 7)
En ég er hinsvegar alveg að drepast úr löngun til þess að vera prinsessa! Já, kallið mig klikkaða eða barnalaga .. I dont care. Margar stelpur dreymir um að verða prinsessa en þessa fór þó ekki að gæta hjá mér fyrir neina alvöru fyrr en núna á allra seinustu árum... ég er eitthvað öfugsnúin í þroska greinilega.
Það lítur bara út fyrir að vera svo ljúft eitthvað. Maður er bara með sína silfurskeið í munni og þaðan fer hún ekki fet! Maður þarf ekkert að bagsa við neitt (nema þá helst kannski að komast framhjá papparössum).. maður þarf ekki að hafa NEINAR áhyggjur af peningahliðinni - enda fær maður nóg af honum frá skattgreiðendum... Maður þarf bara að mæta í stöku boð hér og þar og á einhverjar skemmtilegar athafnir í hinum og þessum löndum... Svakalega finnst mér tilhugsunin um mitt líf eitthvða lítilfjörlegt miðað við þetta. Ég ströggla við lærdóminn framá fullorðinsár og ströggla þá við að borga námið og hitt og þetta þangað til ég dey.. úff
...já.. þetta læt ég mig dreyma um svona á milli þess sem ég vorkenni mér yfir skólabókunum. 
En svona í alvöru.. þá finnst mér svo ósanngjarnt að hugsa til þess hvað sumir fá hlutina á silfurfati en aðrir þurfa að hafa virkilega mikið fyrir lífinu og eignast í rauninni aldrei neitt "líf" (og ég er nú ekki að tala um mitt líf núna - heldur þá sem hafa það verr en ég.. sem eru jú mjög margir)... Þetta er ferlega ósanngjarnt eitthvað.
Og annað þessu skylt. Mér finnst ótrúlega ósanngjarnt að þessir ríku og frægu fá hitt og þetta frítt á meðan sótsvartur almúginn þarf að borga himinháar upphæðir fyrir það sama. Það er eitthvað öfugsnúið við það..
Jæja,. nú ætla ég að hætta þessu nöldri hér á opinberlegum vettvangi og fara að læra í hausinn á mér - það verður víst enn minna glamorous líf sem bíður mín ef ég geri það ekki...
Kveðja
Berglind Prinsessan á Eggertsgötu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.apríl
8.4.2011 | 10:42
Jæja já.
Tíminn flýgur svo að ég næ varla að snúa mér við.
Við Baldvin áttum 3ára afmæli um daginn t.d. - það er náttúrulega alveg súrrealíst að við höfum verið saman í 13,6% af ævi minni.
Annars er bara prófalestur í fullum gangi þessa dagana, enda ekki nema 2 vikur og 5 dagar í próf (jidúddamía). Það er líka augljóst að prófatíð nálgast þar sem lesstofurottum er farið að fjölga. Það er svosem bara jákvætt að prófin séu að koma. Sumarið kemur víst ekki fyrr en þau eru búin 
Ég get ekki beðið eftir páskunum! Stóra kólus páskaeggið situr uppi á hillusamstæðu og bíður eftir því að verða étið.. svo fæ ég líka uppáhaldsmatinn minn - kalkún. Namminamminamm!
Lífið er nú ekkert svakalega innihaldsríkt þessa dagana ... samanstendur af lestri, áti, hoppiogskoppi og svefni.
Fæ að fara með litla uppáhalds í ömmu og afakaffi í dag. Hlakka mikið til. Dýrka þessi litlu systrabörn mín.. og nóg er til af þeim 
Verst bara hvað maður hefur alltaf lítinn tíma fyrir allt og alla stóran hluta vetrar.
Annars ætla ég að fara að fá mér eitthvað í gogginn. Held að ég hljóti að brenna mjög miklu við þennan lestur, er allavegana alltaf svöng.. 
Eigið góðan dag mín kæru
Berglind
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leynilegur aðdáandi
5.2.2011 | 14:22
Jæja, það er kominn febrúar kæru vinir. Langt síðan ég hef séð svona mikinn snjó og mig langar allra helst bara að fara og kaupa mér rassaþotu, fara í múlabrekku og renna og renna. Lífið var eitthvað svo auðvelt þegar maður var bara 9 ára. Maður var bara alltaf að leika eitthvað. Skopparaboltar - pokar - blöð - eina króna - skólaleikur - 10 skref blindandi... ahh good times.
En, ég þarf víst að læra í dag svo ég geti átt kósýkvöld í kvöld :)
Ég er að gæða mér á gotti, enda var ég að klára mánaðarnammibindindi með glæsibrag. Ekkert nammi, enginn ís og ekkert snakk. Og aldrei hefur mér staðið jafn mikið til boða að fá mér hitt og þetta hér og þar. En mind over matter ekki satt?!
Annars langar mig ógurlega að vita hver það var sem sendi mér nafnlaust sms af ja.is og sagði mér að fara að blogga. Ég er búin að spyrja allar þær manneskjur sem ég held að lesi bloggið mitt (sem eru 4 eða eitthvað nálægt því) svo nú spyr ég.. hver ert þú kæri lesandi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jólajóla
26.12.2010 | 23:03
Ó hvað ég er hamingjusöm með jólin..
Baldvin hinn bestasti gaf mér alvöru myndavél í jólagjöf og ég er ekkert smá kát með það :D
Fékk fullt af fínum fötum, bækur, blender, flottasta dagatal í heimi og lyktarsett... allt voðalega ljúft og æðislegt!
En svo er þetta óhóflega át alveg að gera útaf við mig. Er komin með algert súkkulaði ÓGEÐ og hlakka til að fara að hreyfa mig á morgun - er samt í svona nammi/kolvetna/fitu þoku og er náttúrulega ekki að nenna því að fara í world class, en mikið verður það nú gott eftir á. Og ég ætla sko að geyma nammiát fram á gamlársdag takk fyrir.. annars velt ég bara útaf held ég.
eníhú...
GLEÐILEG JÓL :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Prófatíð..
13.12.2010 | 09:14
Mér finnst alveg hreint ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, samt einhvernveginn ekki nógu hratt. þetta er með eindæmum skrýtin tilfinning. Bæði get ég ekki beðið eftir föstudeginum þegar ég kemst í jólafrí, tel alveg niður mínúturnar liggur við, og svo líður það líka alltof hratt því það er svo mikið sem ég á eftir að gera.
Mér líður eins og ég sé að bíða eftir að fá að ganga plankann - svo vonlaust finnst mér þetta próf. Og ég veit það að líkurnar á því að labba útúr prófinu og líða vel með framnistöðuna eru hverfandi. Ef maður nær (sem ég þori ekki að gera ráð fyrir) þá verður það tæpt. Það er víst bara þannig..
en jæja.. vildi bara rétt kasta á ykkur kvarti..
þið sem eruð sjálf í prófum gangi ykkkur svaka vel :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Yndislegt
5.11.2010 | 12:41
Já, það er yndislegt að lesa svona..
Sýnir að græðgin er þá ekki allsstaðar allsráðandi...
Ég tek ofan af fyrir þessu fólki :D:D
|
Öldruð hjón unnu milljarð og gáfu allt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)








