Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
....
30.9.2008 | 21:50
Ég er ekkert voðalega kát eins og er...
Hef komist að því að það er nákvæmlega ekkert í sjónvarpinu.. (eða bíddu.. in plain sight sem var verið að auglýsa og ég hef ekki hugmynd um hvað er, það er víst að byrja bara núna... :)... tékka á því)
Svo er mér ótrúlega illt í bakinu, eftir hvað veit ég ekki... en ég er búin að fara í bað og reyna að mýkja upp svæðið en voða lítið gengur.. Næsta skref er eitthvað undra-hitakrem ...
Svo er ég alveg úrvinda úr þreytu... tók mér góða læripásu í dag... lærði ekki neitt... það var æði.. mikið var það verðskuldað... Svo er bara stærðfræðipróf og íslenskupróf eftir... reyndar ætti þetta bara ekki að vera þarna..
En ... ég ætla að reyna að afstressa mig.. svo að hættum að tala um það..
En ég er semsagt óóótrúlega þreytt eftir að hafa farið alltof seint að sofa undanfarin kvöld vegna lærdóms... og í kvöld ætlaði ég sko að fara að sofa kl 8... það stóðst ekki alveg þar sem ég er að bíða eftir gæjanum mínum..
... En það verður sko ekki farið seinna en hálf 11 upp í rúm og ég ætla að sofa vært í alveg 8 tíma (oh my goood það hljómar ekkert voðalega mikið!!)
En jæja.. farin að tékká imbanum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tilhlökkun...
28.9.2008 | 11:09
Já.. það hefur sjaldan verið jafn mikið að gera í skólanum og seinustu viku og þá næstu. Við erum algerlega að keyra á seinustu bensíndropunum en við getum alveg sagt eins og er, við höfum verið alveg slatta dugleg!!
Ég hlakka alveg gríðarlega til á föstudaginn.. ekki bara útaf því að þá er þessari törn lokið, heldur erum við Baldvin að fara í sumarbústað saman. Bara tvö að hafa það kósý og gott. Það verður yndislegast!! Við ætlum að grilla, kúra fyrir framan sjónvarpið, fara í pottinn og í göngutúr. Aahhh, ég get varla beðið... Ég veit þó að þessi vika verður fljót að líða því það er svo mikið að gera.
Dugnaðarforkurinn minn er að læra núna, ég kem mér ekki alveg strax í það... Við vorum komin á fætur alveg þónokkru fyrir 10, sem telst sem einhverskonar heimsmet fyrir Baldvin... Við vorum bæði voðalega stolt af honum fyrir það...
Þetta er búið að vera ein mesta afmælishelgi í manna minnum barasta...
Á föstudaginn fór ég í afmæli til Gíselu, sem var btw geðveikt gaman
. Ég þurfti því miður að fara snemma til að kíkja á Dabbalíus, því hann átti líka afmæli. Þar var spilað og svoleiðis almenn skemmtilegheit.
Í gær var svo afmæli hjá Halldísi, en hún á einmitt afmæli í dag, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!!... það var líka voða fínt..
En jáh, þetta voru sumsé öll þau afmæli sem ég fór í um helgina... það eru alveg skuggalega margir sem eiga afmæli í þessum 9unda mánuði ársins...
En farin að læra núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Madre mia
20.9.2008 | 21:14
Já, ég, eins og svo margir fleiri, elska þessi lög og myndina... Mig langar pínu á sing-a-long.. er það lúðalegt?! 
Annars sit ég hérna á laugardagskvöldi og hlusta á soundtrackið og bíð spennt eftir að Baldvin klári lærikvótann sinn for the day... Hann er bara aðeins of duglegur drengurinn 
En já, ég ætlað farað halda áfram að syngja með hérna í mínu eigin sing-a-longi ...
toodles
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þreyta og sljóleiki...
10.9.2008 | 19:42
Úff...
þegar maður er í skólanum frá 8-16:20 2 daga í röð og frá 9:45-16:20 næsta dag þar á eftir.. þá hefur það í för með sér gífurlega þreytu...
Þegar við komum heim í gær úr skólanum fórum við beint að læra (enda dugnaðarforkar) og lærðum stanslast (eða já okei við fengum mat) til að verða hálf 11... Við náðum þó að afkasta alveg heljarinnar helling.. en það olli því að við urðum alveg gífurlega þreytt..
En já, nóg um það...
Við fórum í fyrsta danstímann á mánudaginn og það var ÆÐI! Vá það var svo gaman að brosið fór ekki af næstu klukkutímana
ótrúlega sátt!
En jæja, það má víst ekki láta deigann síga... ég ætla að farað gera ritgerð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dansidansi
5.9.2008 | 19:23
Jahérna hér...
Já, gott fólk.. ég er mætt..
Skólinn gengur sinn vanagang og er við það að kæfa mann... En nóg um þau leiðindi..
Busunin var í gær og var það mjög súrrealískt að vera einn af hvíta liðinu. Loksins, loksins fékk ég að vera í toga og heyra eitthvað í músíkinni (en hana hef ég ekki heyrt síðan í 3. bekk þegar ég var of hrædd til að taka eftir henni)... 4. og 5. bekkur eru nefninilega svo langt á eftir að þeir heyra ekki baun..
En já, busunin var í gær og var hún vel mynduð í bak og fyrir.. Og viti menn, var mín ekki bara á forsíðu 24 stunda í morgun! Ásamt Katarínu og öxlinni hans Gunna og hárinu hans Baldvins.. Svo var mynd af Jóa í Mogganum og stárkarnir í bekknum voru að tollera framaná fréttablaðinu.. Já, 6.R er bara langmyndarlegasti bekkurinn og miðlarnir birta auðvitað bara myndir af myndarlegu fólki..
Busaballið var í gærkvöldi og var það alveg drepleiðinlegt.. partýið var ágætis skemmtun en ballið var hrikalegt. Ég skil ekki hvaða bjáni það var sem ákvað að gera rave-ball að hefð... að hafa bara rave-tónlist er nóg til að gera hvern mann brjálaðan.
Ég er að farað í fyrsta tímann í afmælisgjöfinni minni á næsta þriðjudag. Þ.e.a.s fyrsti danstíminn okkar Baldvins!! Samvkæmisdans hjá Jóni Pétri og Köru, það gerist ekki mikið betra held ég.. hlakka rosa rosa til...
En já, við þurfum víst að farað drífa okkur svo garmurinn geti farið að gera sig til, við erum nefninlega búin að vera saman í 5 mánuði, og að okkar mati er það sko alveg eitthvað til að halda upp á!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)







