Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Menntaskólanum í Reykjavík - lokið!

Já, litla stelpan bara orðin stúdent.

dsc04002.jpg

Mér fannst athöfnin virkilega góð í alla staði, þó svo að mér væri orðið heldur illt í baki þegar líða tók á... spurning um hægindastóla? Var líka mjög meðvituð um að allir sæju hvað væri aðhafst uppá sviði svo maður gat ekki mikið hvíslast á um nauðsynlega hluti.
Ræðuhaldarar voru virkilega skemmtilegir og þegar rektor sagði þessi fleygu orð: "Hér með segi ég Menntaskólanum í Reykjavík slitið" fékk maður smá vætu í augnkrókana...

dsc04004_855557.jpg

Veislan var góður æðibiti og ég vil þakka öllum sem sáu sér fært að mæta og gleðjast með mér í gær.
Litlu frænkur mínar: Kolfinna, Hrafnhildur, María Rut, Eva María og Sara Lind bjuggu til atriði fyrir mig. Sungu lag og smá dans með. Það var æði, og ég spurði þær hvort þær vildu ekki gera þetta uppi á sviði fyrir framan alla í veislunni, og þær héldu það nú og ruku af stað og uppá svið. Þær eru ekki feimnar þessar elskur!

dsc04056.jpg

Krakkarnir kíktu svo í smá stund eftir veisluna sjálfa og það var bara mjög notó...

Annars vil ég þakka öllum fyrir góðar gjafir og góðar kveðjur. 

Ég leyfði mér svo bara að sofa út, svaf alveg til hádegis, en það hefur ekki gerst fyrr en einhverntíma löngu fyrir próf!! Það var rosa gott, var samt ekki nógu kát með að vera vakin þá við sms hljóð!

Annars styttist í að ég geti ekki beðið lengur með að byrja að rifja upp hluti fyrir læknaprófið. Maður þarf eiginlega að gefa allt í þetta... það er svo gríðarlegur fjöldi sem veitir manni samkeppni... 300 manns sem þreyta prófið, 48 sem komast inn... 16% líkur ef allir hefðu sömu líkur... 

doctor

Ég get nú ekki sagt að ég sé illa stödd... en þar sem orkan er einfaldlega í mínus er mjög svo erfitt að rífa sig upp og ætla að byrja að læra enn þá meira.. En það kemur í ljós hvernig fer ... Ætla ekkert að stressa mig neitt gífurlega á þessu... Baráttan mun hefjast á mánudaginn!! Errm

En júbílanta ballið er í kvöld.

Hálfsé eftir að hafa keypt miða, langar bara að kúrast heima fyrir framan sjónvarpið með Baldvin mínum! Matseðillinn er heldur ekkert voðalega girnó... Eeeen ég læt mig hafa þetta...

dance011


Útskrift á MORGUN!

Varla að maður sé að átta sig á þessu...
Menntaskólinn bara búinn.. Gasp

Ég hlakka samt rosalega til á morgun, ótrúlega spennt eitthvað :D
Vona samt að það rætist úr veðrinu...

En staðan er sumsé þannig að ég útskrifast með prófseinkunnir frá 8,5 upp í 10... nokkuð sátt með það bara Grin Hefði reyndar viljað sjá færri 8,5 og fleiri 9,5... eeeen.. það eru smámunir... 

En já, ég þarf að fara að njóta afslappelsisins...

 


Eðlisfræði...

Eðlisfræði ... hún er alveg ágæt. Í fyrra, þegar ég var að læra hana, þá ÞOLDI ég hana ekki. Einhvernveginn tókst mér samt alltaf að standa mig á kaflarófum (VEIT ekki hvernig!) og útskrifast með 9,5 í stúdentsprófseinkunn (það sökkar dáldið að stúdentseinkunnin mín verði samt "bara" 9, því ég fékk 8,5 í kennaraeinkunn... ætti að banna að lækka fólk, sjálfsagt að hækka það...)

En já, semsagt... Ég vaknaði ógurlega (ó)hress og (ó)kát (ó = mjöööög þreytt og dösuð)... Drattaðist á lappir og fór á námskeið og fræddist um eðli hluta. Þá fékk ég einmitt þessa tilfinningu "eðlisfræði er alveg skemmtileg" og meira að segja skaust uppí kollinn sú hugsun að ég ætti kannski bara að dissa þetta læknapróf og fara í eðlisfræði í háskólanum .... minningarnar úr óskiljanlegum eðlisfræðitímum, skynsemin og sú staðreynd að ég er einstaklega óþolinmóð þegar ég skil ekki eitthvað 1, 2 og 10, urðu þó til þess að þessar hugsanir voru kæfðar nánast í fæðingu. En samt.. mér leiddist ekkert á þessu námskeiði.. það var alveg gaman :D

En talandi um þetta námskeið... við erum að tala um að mannfjöldinn er svona 80 manns ca... Og ég ætla að minna  ykkur á að það komast 48 inn... Líkurnar eru ekkert sérstaklega í hag einstaka mönnum og ég set upp svartsýnisgleraugun... Annars er ég taka á þessu öllu með stóískri ró, eitthvað sem er mér ekki eðlislægt (þ.e.a.s. róin)... Það er ekkert hundrað í hættunni þó ég komist ekki inn í þetta. Það er hægt að gera svo margt spennandi.
kannski reyni ég aftur, kannski fer ég lögfr, kannski fer ég í sálfr, kannski fer ég í líffr, kannski vinn ég í eitt ár.. það er svo margt í stöðunni... Spakmælið um hurðinar sem lokast og opnast til skiptist á svo sannarlega við hér...

En já... aftur að þessari nýtilkomnu stóísku ró... ég held það sé annað og fínna heiti á leti... Ég er nefnilega komin með lengst uppí kok á lærdómi.. Ég sprengdi mig alveg einhverntíma um mánaðarmótin apríl - maí... og er búin að þrjóskast í gegnum þetta helv*** á þeirri hugsun að allt taki þetta nú brátt enda, þetta er eitthvað sem allir þurfa að gera (þ.e.a.s. allir þeir sem völdu MR... einhverskonar sjálfseyðingahvöt í því fólki...:p)... En .. nú þegar þessari skyldupyntingarstarfsemi er lokið... þá er mér einnig allri lokið. Ég - get - ekki - meira... Í dag er ég þessvegna varla búin að gera neitt... (eðlisfræðin liggur nú samt opin fyrir framan mig, og ég er búin með alveg tæpar 2 bls)... Þannig að.... ég veit ekki hvernig fer... 

En jæja.. ætli ég reyni ekki að lesa eitthvað smá áður en ég þarf að fara að sækja mömmslu í vinnuna... 

Bæbæbæbæ


Alveg að klárast...

... það er líka eins gott því að ég er alveg á seinustu bensíndropunum. Ég get svo svarið það að eftir þessa törn gæti ég sofið í heila öld eins og hún Þyrnirós gerði hér í denn.
En, svo gott er það nú ekki þar sem að strax eftir prófið hefst lestur undir næstu 6 próf. Já, ég er á leiðinni í síuna gott fólk.... síuna sem ákveður hverjir munu verða góðir læknar og hverjir ekki.... sían sem engum hlífir.. sían mikla...
Einhversstaðar heyrði ég töluna 500 nefnda í sambandi við inntökuprófið.. en ég held það sé kjaftæði...
En annars veit ég það nú að það yrði enginn heimsendir þó ég kæmist ekki inn... Ég myndi bara þurfa að hugsa mig rækilega vel um uppá nýtt... Margt sem kemur til greina.
Verst að vita ekki fyrirfram hvort maður komist inn.. andsk*** leiðilegt að vera að læra allt þetta dót til einskis... nenni mjöööög lítið að fara að demba mér í eðlis- og efnafræði sem ég hélt að ég væri laus við forever....

Annars er næsta próf munnleg stærðfræði... og mér líður eins og ég sé að hefja mína löngu göngu til feðra minna... Ég er einhvernveginn ekki að trúa því að fólk hafi í áraraðir náð þessu prófi. Skil ekki afhverju skólinn er ekki fullur af eilífðarstúdentum sem hafa (skiljanlega) fallið á munnlegri stærðfræði í 6. bekk.
Svo ég tali nú ekki um tilgangsleysið.. Ég heiti hér með fundarlaunum: fólk sem finnur ástæðuna fyrir þessari pyntingarstarfsemi má vinsamlegast láta mig vita og hann fær vegleg verðlaun...

En jæja... ég á 9 verkefni eftir af áætluninni fyrir daginn í dag svo að best að bretta upp ermar...
Eftir 66 klst mun þessu tímabili ljúka... Takk fyrir pent

 

 


Er gott veður eða?!

... Já.. ekki veit ég það nú, þar sem ég sit inni - með allt dregið fyrir - og les sögur og ljóð... Litli lúðinn í mér er endurfæddur...

Ég er að bíða eftir að móðir og faðir komi innúr golfinu... því að þá get ég horft á Idolið á plúsnum... allamalla.. vona vona vona að Danny vinni þetta :D En úrslitin verða víst sýnd í beinni hér á miðvikudaginn á ókristilegum tíma... ég náttúrulega get ekki horft á það - mér er neitað um öll skemmtilegheit í þessum prófum... Ég bara tek það upp og horfi seinna... :D

Annars fórum við Baldvin í golf í góða veðrinu í gær (það var svo sjúúúuklega gott veður að ég tönnlaðist á því allan daginn)
Baldvin þóttist ekkert geta og bað mig um að kenna sér hvernig ætti að halda/standa/slá... og ég gerði það jú með góðri samvisku ... Slær kallinn ekki kúluna á við Tiger sjálfan Woods.... Hrikalega var ég stolt af honum  Grin
Nú er hann búinn að bita í sig golfáráttuna.. þetta er greinilega smitandi andskoti.. hann hefur greinilega eytt of miklum tíma á þessu heimili þar sem farið er í golf 2x á dag hvernig sem viðrar...
En já, við ætlum að reyna að stunda þetta eitthvað í sumar og æfa okkur ... og stefnan svo tekin á PGA á næsta ári...  (ég að sjálfsögðu sem kaddý)

Ég er að hlusta á Eurovision - djöfull var þetta gott ár eitthvað... Fullt af flottum atriðum

Tyrkland - flott mál
Azerbajian - flott mál
Grikkland - snilldaratriði bahahaha ég hló og hló og hló
Úkraína - ef ég hló að Grikklandi tvöfaldaðist hláturinn þegar Úkraína kom á sviðið. Dansararnir voru BESTIR bahahahah
Portúgal - Ótrúlega flott og fallegt
Ísland - gæsahúð allan tíman... ekkert hlutdræg hérna megin
Kýpur - langaði að fá það áfram
UK - hún söng æðislega... fannst samt nett fyndið þegar fiðluleikarinn gaf henni einn áann! bahaha
Noregur - æj hann er nú soddan dúlla.. fattaði ekki hvað málið var fyrst.. en ég er orðin sátt... flott atriði í alla staði
Svíþjóð -  rosa flott.. 

En jæja... nóg af euro.. meira af stjörnunum í Konstantínópel

 


Biturleikinn...

Já... biturleikinn gerir vart við sig sem aldrei fyrr á þessum síðustu og verstu tímum...

 Ég er alveg komin með upp í kok af þessum prófum og dreymir í tíma og ótíma um stúdentsathöfnina og stúdentsveisluna... ég myndi hugsa um seinasta prófið... ef það væri ekki svona ógnvekjandi... 

Ég er búin að ákveða að horfa á Idolið í kvöld... það er bara róandi.... vandamálið er bara að ef svo á að verða þarf ég að vera dugleg í dag..en ég bara get það ekki. Mig langar bara að baka köku og setjast með hana fyrir framan imbann og glápa á eitthvað og þurfa ekki að nota heilann..

Ég er búinað fara yfir allt efnið i líffræði.. en mér finnst ég bara ekki kunna það nógu vel. Mig langar svo að geta rúllað upp þessu prófi, því að ég er góð í líffræði þó ég segi sjálf frá. En öllu má nú ofgera og þetta efni er alveg nokkrum tugum bls of mikið... Ég er samt nokkuð bjartsýn á þetta ... þó svo að ég sé ekki að nenna að rifja upp í dag, sem ég og þarf að gera...

Svo er ég ekki að fila alla þessa verslinga á facebook sem eru að fara í sitt seinasta próf núna von bráðar. Í fyrsta lagi er ég buin að vera helmingi lengur í prófum en þeir og ég á miklu meira eftir... æjjj... elsku besti MR...

En jæja, ef pásan fer að verða mikið lengri þá þarf ég víst að sleppa Idolinu... svo að...

 

Blöh


Getur ekki meira...

Ég ætla að slá þessu upp í kæruleysi og segja þetta gott...

Kl er hálf 8 og ég bara geeeet ekki meira. Það verður bara að koma í ljós á morgun hvað gerist. Mig grunar nú samt að ég muni naga mig í handarbökin... en ég ætla ekki að fást um það. Ég ætla að slappa af og horfa á Idolið í kvöld.... Reyna að gleyma mér.... 

Ég óska bara öllum góðs gengis á morgun... (og sjálfri mér einnig)

 

Mbk

Berglind


Update...

Ég held ég hafi ekki verið búin að nefna það hér... en við Baldvin erum í nammibindindi....
Það er ekki mitt fyrsta... en oh dear looooord hvað það er erfitt. Það var ég sem ákvað allar hliðar samningsins en strax daginn eftir vildi ég bakka út.... Það eina sem heldur mér í þessum litla "leik" eru verðlaun sem ég mun fá... Baldvin er líka alveg einstaklega duglegur að hjálpa mér í gegnum þetta. Mér finnst hinsvegar alveg stórfurðulegt hvað þetta er ekkert mál fyrir hann, hann pælir eeeekkkert í þessu... enda ekki mikill nammikarl... (væri verra ef bindindið snerist um kókómalt eða jógúrt eða grillað brauð með pizzusósu).....

 

Annars erum við nú bara á bólakafi ofaní reikningsbókum.... Þetta próf er alveg við það að drepa í mér alla lífslöngun. Ég hef ALDREI verið eins stressuð og fyrir þetta próf. Það byrjaði strax að örla á stressinu í 3. bekk ... þegar ég byrjaði svo að læra fyrir prófið núna á fimmtudaginn fékk ég kvíðaköst á klukkustunda fresti ég get svo svarið það... Þetta próf hræðir mig alveg gríðarlega og ég get ekki beðið eftir því að klára það.
Ég sé nefninlega fyrir mér allt stressið sem verður fyrir utan stofuna og svo sé ég fyrir mér að ég muni setjast við borðið og ekki skilja neitt. Það hefur nefninlega gerst einu sinni á ferlinum að ég lokaðist algerlega í prófi og það er svoooo óþægilegt... Vil ekki lenda í því aftur.
Svo finnst mér efnið svo óstjórnlega mikið að mér finnst varla hægt að kunna það allt. Núna á meðan ég er búin að vera að renna yfir efnið þá finnst mér ég alltaf gleyma hlutunum jafn óðum.... Ég reyni samt að hugsa sem minnst um það, það eykur bara stressið og það er varla á það bætandi..

Ég er orðin eins og hringjarinn frá Notre Dame ég er alltaf svo hokin í herðum yfir bókunum og það tekur á að rétta úr bakinu. Þarf líka að fara að stunda göngutúrana aftur... það er alveg ómögulegt að hírast inni ALLAN daginn frá 8-10... en það er einmitt það sem við gerum.

Við vöknum rúmlega 7, fáum okkur hafragraut og lesum blaðið og svo bara húkum við inni í herbergi þangað til að heilinn hættir að virka um 10 leytið. ... Þá er hann líka alveg stopp og ekkert kemst inn né út....

En jæja.. ætlaði ekki að hafa nöldrið svona langt í þetta sinn

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband