Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
Nei... hættu nú!
12.9.2009 | 18:03
Ég er aftur orðin lasin... sami skíturinn, hóstandi út í hið óendanlega... geeeet ekki sagt annað en að ég sé orðin örlítið þreytt á því...
Vegna þessa fór ég að sofa kl rúmlega 10 í gær, á föstudagskvöldi ójá... Það var samt voða ljúft.. :) Alltaf gott að kúrilúrast heima hjá sér..
Í morgun fórum við svo niðrí bæ að lesa og læra í hausana á okkur, það gekk heldur brösulega hjá mér.. svo kom geitungur inn í stofuna og hvaðeina.. ojjabjakk.. Hef aldrei á ævinni verið jafn hrædd held ég.. fór að ofanda og allt...
Eftir það kíktum við í kringluna og stússuðumst smá þar og settumst á kaffihús... alltaf ljúft..
Svo er ég nú bara komin heim í kot að hafa það kósý.. Í kvöld er það svo afmæliii... En þar sem ég er slappari en allt sem slappt er veit ég ekki hvað ég endist þar lengi :(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1. prófið búið...
8.9.2009 | 20:53
... og þar með ólífræn efnafræði. Ég myndi hrópa þrefalt húrra... en þar sem ég sé fram á 4 vikur af lífrænni efnafræði verða þau ekki nema tvö... þannig að: húrra-húrra......
prófið gekk bara vonum framar (held ég, annars var þetta krossapróf og það getur alltaf verið tricky)... svo að kvöldið í kvöld er bara helgað einhverju allt öðru en lærdómi... Er reyndar með mjög illt í bakinu og get varla staðið, setið né legið... svo að lífið er frekar erfitt...
Ég HATA Harper´s Island auglýsingarnar... ég verð bara hræddur...
Eníveij... ég ætla að leggja frá mér tölvuna og reyna að koma bakinu í sem þægilegasta stellingu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)







