Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

31. janúar

Jæja þá... heil og sæl

Það er allt fínt að frétta af mér og mínum.. Dagurinn hjá mér er ca þannig að ég vakna, fer í leikskólann, leik mér, fer í pásu, leik mér meira... skipti á MÖRGUm bleyjum og þurrka mikinn hor, svo fer ég heim, slaka á og fer að sofa.. Þarf að fara að koma því að læra inn í rútínuna hjá mér, og world class jafnvel.. það hefst allt með kalda vatninu. 

Eftir allan þennan hor-þurrk er ég sjálf orðin lasin.. Mér er svo hrikalega kalt, ég er með hauskverk, með hálsbólgu og hósta.. er ekki alveg að nenna því! En svona er þetta nú víst...

Strákarnir okkar að keppa um bronsið á eftir, mikið hrikalega var nú leiðilegt að tapa þessu í gær.. fyrir utan þessar 5 mín í byrjun seinni hálfleiks spiluðum við mjög vel.. þeir voru einfaldlega aðeins of sterkir.. enda hörkulið!! Við hengum nú samt vel í þeim í fyrri hálfleik.. enda við með mjög öflugt lið líka.

 Það var rosa gaman í gær. Það var smá kveðjuhóf hjá Pésa og Rósu enda þau að halda utan í 3 mánuði.. heppin þau!! Hefði ekkert á móti smá heimsreisu skoh... aðallega bara kostnaðinum... Óska þeim góðrar ferðar og vona að þetta verði jafn hrikalega skemmtilegt og það hljómar :D

Ég ætla að farað kúra mig undir teppi og reyna að láta þennan sloj leika fara úr mér...


24.01.10

Ég er ekki nógu dugleg að blogga þessa dagana... kannski vegna þess að enginn les þetta lengur..

 

EM byrjað... búið að vera frábært mót.. strákarnir okkar gerður þetta svo sannarlega spennandi í fyrstu tveimur leikjunum.. allir gusuðu útúr sér einhverjum orðum um vanhæft landslið og eitthvað... en ekki alvöru stuðningsmenn eins og eg.. nei nei nei..
Tókum Danina svo í gær... mikið var það nú ljúft!!

Ég er búin að smita Baldvin af áhuganum og hann virðist taka þetta skrefinu lengra en ég.. búin að kynna sér allt saman... riðlana, styrkleikana, reglurnar og búinn að senda kveðju á ibs.is.. :)

En já.. ég man ekki hvort ég hafi verið búin að segja það hér.. en ég er eins og stendur í 2 vinnum og í skólanum.. Er í Hagganum aðra hvora helgi og öll fimmtudagskvöld og svo á leikskólanum Öskju alla virka daga.. Svo mæti ég í skólann á mánudögum og miðvikudögum. Er samt að vona að ég fái að sleppa miðvikudagsfaginu því að þessi önn átti að vera smávegis frelsi... umhugsunartími fyrir mig og smá hlé frá skólanum.. en vegna þess að við erum á görðunum var það víst ekki í boði.. mig vantaði 8 einingar uppá.. Mér líst hinsvegar svo vel á mánudagsfagið og það er líka bara 4 einingar og er ekkert langt framá vorið svo mig langar að taka það.. Sjáum hvað setur.. krossleggjum fingur og tær...

 

Það er eitthvað við það þegar ég blogga.. ég þarf alltaf að setja punkt, punkt, punkt.. veit ekki afhverju

 

En jæja.. ég er að farað gera mig til fyrir afmælið hennar Evu Maríu minnar.. hún er að verða 7 ára á morgun! Finnst eins og það hafi verið í gær þegar ég sá hana fyrst og hélt á henni 2 klst gamalli... síðan þá eru komnir 4 gríslingar ... allir jafn frábærir.. 


3 dagar!!!!

3 dagar í EM!! wohoooo

ég er ALVEG búin á því í fótunum... fyrsta 9 tíma vaktin mín í laaaangan tíma.... fínt að græða smá pening :)

Ég dýrka kurteist fólk hrikalega mikið :)

 


13.01.10

Já, ég er bara soltið einmana núna... Baldvin litli að vinna... ekkert í sjónvarpinu (leikurinn var að enda)... ég nenni ekki að lesa.... nenni ekki að brjóta saman þvottinn.... nenni ekki að pússla... nennekkenennekkenennekke...

 

En nú jæja, annars er mín formlega hætt í læknisfræði og skráð í félagsráðgjöf.. finnst kúrsarnir þar hljóma hrikalega vel ... (ég er þó ekkert gefin fyrir hópverkefni... en mig grunar að slíkt sé alveg notað óspart í þessari deild :( ) Annars verð ég bara í 10 einingum.. verð svo í Hagganum aðra hvora helgi og öll fimmtudagskvöld.. reyna að skrapa saman smá pening... finnst ekkert hrikalega gaman að sjá peningana bara hverfa af heimabankanum mínum.. og koma ekkert aftur... það er DÝRT að búa...  Svo ætla ég að vera dugleg að byggja mig upp.. finna mig og vera dugleg í ræktinni og ... já.. eins og ég segi... bara finna sjálfa mig og lifa lífinu mínu ... Ég á nefninlega alveg einstaklega gott líf..

Ég ELSKA bestastabesta kærastann minn!!

Ég ELSKA fjölskylduna mína!!

Ég er heilsuhraust!

Ég á góða vini!

Og ef þetta tvennt er í lagi... þá getur maður ekki beðið um mikið meira!! 

 

Harðsperrurnar eru enn á sínum stað.. því er nú ver og miður.. gat varla labbað niður stigann í dag .. og átti hreinlega erfitt með að labba á sléttum flötum líka..

Arg.. ég er alveg að farast úr löngun í eitthvað.. hvað það er veit ég ekki.. eða jú ég veit það svosem.. mig langar í köku, nammi og ís.. en það má ekki :( :(  úff hvað það er erfitt að vera ég..

 

Jæja.. ég er farin..


09.01.10

Ahh.. ég er með harðsperrur.. en það er bara gott mál:)
Við sköthjúin erum að byrja í ræktinni af kappi núna eftir áramót.. Fórum í gær og fórum í dag. Ég fór í kickbox í gær og ég er að deeeyja úr harðsperrum í upphandleggnum og í bakinu.. og í trappanum..

Það var opið hús í world class í dag og Baldvin kom því með mér þangað.. 

 

Annars er bara allt fínt og flott að frétta.. Tvíbbapössun í kvöld sem er alltaf skemmtilegt InLove.

En ég ætla að hunskast í sturtu svo ég geti nú farið útús húsi ...

 

 

 

vá... tilgangslausasta blogg ever...


Allt svo dýrt...

Nú verð ég bara að fá að kvarta...
Ég er með exem, sem er ekki frásögu færandi nema hvað... ég er búin að eyða svo miklu pening í þetta að það hálfa væri miklu meira en nóg.. þetta er reyndar það slæmt að ég er að rembast við að hamra á lyklaborðið, get ekki beitt höndinni almennilega hún er svo bólgin og rispuð og marin.. Búin að vera 2x til læknis (og að borga 4500 kr fyrir læknisheimsókn þar sem læknirinn mætti of seint og sagði mér það sem ég vissi sjálf er hreint ekki eitthvað sem ég kalla skemmtun) Nú jæja, hún skrifar fyrir mig 3 lyfseðla... ég ákveð að kaupa eitt lyfið ... og þá kostar það 3500 takk fyrir... það var semsagt 1/4 af því sem hún sagði mér að kaupa (mismikill styrkleiki og eitthvað)... jiiiii minn eini..

 

En já, ég vaknaði semsagt "eldsnemma" (kl 8) til að fara til læknisins... og minn yndislegi kærasti vildi ekki sjá annað en að hann kæmi með mér svo hann reif sig upp á rassinum líka ... hann er reyndar farinn að sofa núna aftur.. svo að ég sit bara ein hérna heima... ekkert í sjónvarpinu.. ekkert á tölvunni... of þreytt til að standa upp ... og of vakandi til að farað sofa...

 

Okei... búin að tæma væluhólfið í bili...


2010

Jæja, þá er nýja árið hafið..

Ég er næstum enn með vatn í munninum eftir kalkúninn góða í gær, vildi að ég væri á Bakkastöðum og gæti borðað afgangana :s
Skaupið var bara ágætt, sérstaklega fannst mér lokaatriðið flott og vel gert!
Þegar kl sló 12 vorum við; ég, mamma og pabbi stödd í Öskjuhlíð með öllum útlendingunum og horfðum yfir borgina (og Kópavog) .. aldeilis litadýrð.. mér er samt aldrei vel við þetta, og satt best að segja frekar smeyk bara.. var mjög fegin þegar ég var komin aftur inn í bílinn... Svo keyrðum við niður Laugarveginn og hjá Hallgrímskirkju, það var nú meira bilunin... fólk útum ALLT!!
Kvöldið endaði svo á Túngötunni áður en við röltum heim á leið og fórum að sofa..
Já, bara fín áramót í alla staði.

En jæja, ætli ég fari ekki að hlusta á áramótaávarp hr Ólafs Ragnars...

 

Hlakka til að sjá ykkur öll á nýja árinu!!!

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband